|
Fína og Fallega fólkið ;D
|
29.11.2008 22:40:16 / sveitavargurinn
Hvað er málið með þennan endalausa snjó hérna á Egilsstöðum? Það er búið að snjóa hérna stanslaust seinastliðna viku, og það er allt á kafi. Og ég hef komist að því að Eigilsstaðabúar kunna ekki að ryðja, þeir ryðja göturnar hér þannig að bílar geta varla mæst. Persónulega þoli ég ekki mikinn snjó, nema á jólunum, þá á að vera mikill og skjannahvítur snjór. En þar fyrir utan er ég ekkert hrifinn af þessu drasli. Í dag er 29. nóvember og ég sit hér fastur á Egilsstöðum, það er fátt leiðinlegra en að hanga á Egilsstöðum að óþörfu. Miklu frekar væri ég nú til í að vera heima og skreppa í sveitina t.d. en nei, það þurfti að vera ömurlegt veður hér. Ég ætla samt að vona að þetta verði seinasta helgin sem ég sit fastur hér á Egilsstöðum. En það er eitt gott við það að vera fastur hérna, ég get nýtt tækifærið og byrjað að læra undir prófin. Reyndar þá hugsa ég að ég fari bara að byrja á því núna. p.s. Karol var Awesome.
»
22.11.2008 16:34:33 / sveitavargurinn
Jæja, ég er nú að hugsa um að byrja aftur að blogga. Nú fara jólin að nálgast enn og aftur. Það var kominn 18 nóvember þegar menn fóru að hengja jólastjörnur á ljósastaurana á Egilsstöðum, en þeir eru ekki byrjaðir hér á Stöðvarfirði, sem er þó bara nokkuð gott. Mér finnst eins og að það ætti ekki að byrja að skreyta fyrr en í desember, annars fær maður bara leið á öllum þessum jólaljósum. Nú þegar það er svona stutt í jólafríið fara prófin að nálgast, og þá verða kennarar ofvirkir og fara að setja endalus próf og verkefni svo þeir geti sett saman einhverja vetrareinkun. Ég hugsa að það sé samt fall í stærðfræði 122 hjá honum Guðmundi Tuliniusi. Ef það er einhvað sem ég þoli ekki þá er það stærðfræði hjá Tuliniusi. Ég bara skil hann enganvegin, skil ekki einu sinni hvernig hann fékk vinnu þarna. Hann byrjar tímana á því að skrifa fullt af dæmum uppá töflu, reyna að útskýra hlutina fyrir okkur, það er svo sem allt í lagi en það asnalega við þetta er að eftir 10 mín eða svo fattar hann að hann hefur gert fullt af villum og fer að leiðrétta, og þá fatta ég að ég hef bara verið að gera einhverja bölvaða vitleysu. Ég hef verið að skrópa eða srá mig veikan svona 2 í viku bara til að reyna að skilja þetta sjálfur inná herbergi. En áfram með jólin, nú eru útvarpsstöðvar landsins farnar að spila jólalögin aftur. Og fólk farið að huga að jólaundirbúningnum, fólk fer að fara að skreta, þrífa, baka og hugsa um hvað það á að gefa sínum nánustu í jólagjöf. En um hvað snúast jólin? Snúast þau um jólaljós, kökur eða gjafir? Nei! Þau snúast um fæðingu frelsarans og allt sem hann gerði fyrir okkur, það væri ágætt að hafa það í huga ef maður myndi trúa á hann, annars snúast jólin orðið um jólaljós, gjafir og kökur. Jólin snúast um að skreyta og gefa, sem er ekkert svo slæmt. En það er samt fullt af fólki sem heldur jólin til að minnast Jesú og allt það. Ég lít á jólin sem fjölskyldustund.
»
24.03.2008 20:48:24 / sveitavargurinn
Það var aldeilis tími til kominn!! Þessi síða mín er nú ekki búin að vera í alveg sínu besta formi hingað til. Þannig er nefnilega mál með vexti að það komst ekki nokkur maður inná hana í nokkurn tíma, ekki veit ég af hverju. En það er liðinn tíð. Snúum okkur nú að nútíðinni. Ég ætti reyndar að vera að gera 3 blaðsíðna ritgerð í íslensku og lesa enskubók, en ég er bara svo engan veginn að nenna því. Enda ætti ég heldur ekkert að nenna því að það ætti enginn að þurfa að læra í fríum. Ef svo væri, af hverju þá að kalla þetta frí. Ég myndi frekar kalla þetta... Ég finn ekkert nafn eins og er, en þetta ætti ekki að kallast frí nema maður fái frí. Ég tel frí vera einhvað sem maður fær til að hvíla sig eða gera það sem maður vill, ekkert sem tengist því sem maður fékk frí frá. Svo er hérna eitt sem mér datt í hug um daginn. Það var í tíma, nánartiltekið í dönsku tíma, þá komu nokkrir krakkar með kassa fullan af smokkum. Hver nemandi fékk einn smokk, þetta var einhvað svona til að hindra að menn myndu smitast af kynsjúkdómum. Eitt sem mér fannst athugavert við þetta allt saman, maður fékk bara EINN smokk!! Hver var þá tilgangurinn að dreifa þeim ef maður fékk bara einn. Býst þetta fólk við að venjulegur unglingur ríði bara einu sinni á ævinni, ef svo er þá skjátlast þeim. Í smokka bréfinu voru nokkur svona „vissir þú að...“ dæmi. Svona var þetta; Vissir þú að.... ...sæði getur náð allt að 130 km/klst. Hraða við sáðlát ...stelpa getur orðið ólétt þó hún hafi aldrei farið á túr ...kynsjúkdómar eru einkennalausir í allt að 70% tilfella ...sæði getur lifað í allt að viku inní kynfærum kvenna ...smokkur kostar 100 kr., pilluspjald 500 kr., bleiur í mánuð 5000 kr. Af hverju ekki bara að dreifa blaði með þessum ábendingum. Því ég alveg lofað ykkur því að einn smokkur, hann nægir ekki. Bloggfærslu slitið....
»
23.01.2008 21:38:56 / sveitavargurinn
Bloggið að
þessu sinni verður nokkuð innihaldsmikið.Ég vil nú
byrja á að óska Íslenska landsliðinu til hamingju með sigurinn, en
leikurinn fór 36 - 28 fyrir Íslendingum.
Þess er
minnst í dag að 35 ár eru liðinn síðan eldgosið í Vestmannaeyjum
var, og eru nú eyjabúar að fagna þessum ósköpum.þeir halda ekki
minningarathöfn vegna þess að það lést enginn, en í staðinn halda
þeir svona þakkarhátíð vegna þess hve vel gekk að koma öllum til
meginlandsins.
Ég hef
lengi pælt í því hvort maður ætti að gerast ásatrúar, eða bara
halda áfram að vera þessi trúleysingi sem ég er og skrá mig úr
þessari fjandans þjóðkirkju.Þetta er spurning.
En nú ætla
ég að koma mér að aðalefninu í þessu ágæta bloggi. Eins og svo
margir vita legg ég stund á nám við menntaskólann á Egilsstöðum og
er þar af leiðandi á heimavist skólans.
Það er húsfreyja á staðnum sem sér um að stjórna staðnum ef stjórn
skyldi kalla.Hennar helstu störf eru að passa uppá það að
vistarbúar fari eftir settum reglum og hagi sér skikkanlega.
Ég er með þeim Einari Tómasi og Guðgeiri Fannari í herbergi.Það er
ein reglan hér sem segir að það eigi að vera kominn ró á vistina
klukkan 12 á kvöldin.
En eigi að síður lentum við í því skemmtilega atviki að húsfreyjan
á staðnum opnar hurðina okkar og segist vera að leita að
einum nemanda sem er ekki skráður á vistina og má þar af leiðandi
ekki vera á vera á vistinni eftir klukkan 12 á kvöldin minnir mig.
Hún heldur því fast fram að hann sé hér inni og segist vera viss um
það, hún leitar í skápunum og lítur inná klósettið hjá okkur, þrátt
fyrir það að við segjum henni að hann sé ekki hér inni. Loksins
þegar það kemur stelpa inn til okkar og segir húsfreyjuni að hún
hafi farið í vitlaust herbergi. Það var nefnilega hringt í hana og
sagt að þessi nemandi væri í herbergi 222, við hinsvegar erum í
herbergi 220.
Ég vil benda á það að þessi atburður gerðist eftir klukkan 12 að
kvöldi, réttara sagt hálf 1 að nóttu. Þá á semsagt að vera kominn
ró á vistina.
Hvað ef við hefðum nú verið sofandi ?
Þetta er heldur ekki í fyrsta skipti sem hún riðst inná fólk með
master lyklinum.
Ég tel þetta vera rof á einkalífi.En ég ætla
nú að segja þetta nóg héðan úr herbergi 220 en ekki
222.
´
'sveitavargurinn
';*
»
13.01.2008 17:40:10 / sveitavargurinn
Þar sem ég er svo vanafastur hef ég ákveðið að halda mig hér í nokkurn tíma í viðbót, og þar fyrir utan er bloggar.is ömurlegt.
Blogg væntanlegt bráðlega  -Sveitavargurinn
»
02.01.2008 19:00:56 / sveitavargurinn
Í tilefni af því að árið 2008 er ár breytinga, hef ég ákveðið að færa mig yfir á bloggar.is.
Sveitavargurinn
»
31.12.2007 14:28:58 / sveitavargurinn
Gleðilegt nýtt ár !! Takk kærlega fyrir árið sem er að líða, með von um að næsta árið verði ennþá betra
»
23.12.2007 17:21:42 / sveitavargurinn

Takk fyrir öll kommentin á árinu, takk fyrir innlitið. Jólakveðja frá Sveitavargnum.
»
19.12.2007 22:46:10 / sveitavargurinn
Ég ætla að biðja alla sem leggja leið sína hér inná þessa síðu, að segja sína skoðun á þessu myndbandi. Það er að segja ef menn sjá sér það fært að kommenta.
»
14.12.2007 11:50:53 / sveitavargurinn
Já góðan og blessaðan daginn.
Nú eru prófin loksins búin og ég kominn í jólafrí.
Ég ætla nú að tala smá um eitt lítið atvik sem henti mig um daginn. Það hafa margir heyrt um innu.is, hún er einhverskonar skólasíða. Þar geta nemendur skráð sig inn og athugað með einkunnir og margt annað, s.s. námsferil, mætingu í skóla, einkunnir úr samræmdum prófum og margt fleira um mann sjálfan og það sem tengist skólanum sem maður gengur í. Ég ætlaði nú bara í mesta sakleysi að athuga hvernig mér hefði gengið í prófum, og skráði mig inná innu, en það kom bara; - Aðgangur þessa notanda er lokaður.
Hafðu samband við umsjónarmann kerfisins í skólanum.
Svo ég hélt að honum hefði verið lokað af því að ég hefði slegið rangt lykilorð of oft inn, svo ég sendi þeim þennan fína fína mail; Og fékk þennan til baka; Sæll Bjarni Stefán Það er víst vegna skuldar þinnar við mötuneytið sem búið er að loka aðgangnum Kveðja, Kristjana Af hverju í ósköpunum ætti að meina mér aðgangi af innu þó ég skuldi örfáar krónur í mötuneytinu. Ef maður skuldar landsbankanum þá loka þeir ekkert einkabankanum, er það ? Það væri skiljanlegra ef mér yrði meinaður aðgangur að mötuneytinu.
'Sveitavargurinn';*
»
08.12.2007 11:28:01 / sveitavargurinn
Tvíhöfði - Ónefnt Jólalag Á síðast liðnum jólum Kom jólasveinninn heim til mín Með fullan poka af pökkum Og kumpánlega svipinn sinn En ég varð dálítið hissa Hélt að einhver væri að brjótast inn Svo ég steinrotaði jólsveininn minn
Ég barði hann með baseball kylfu Og sparkaði bumbuna í Henti honum út um gluggann Og sendi hann í sjúkrabíl Það er bara eitt sem ég vil segja Við þennan jólasvein Fyrirgefðu að ég rotaði þig um jólin
Já, fyrirgefðu að ég rotaði þig um jólin Ég vona að þú komir aftur þessi jól Því nú ætla ég að taka betur á móti þér Með ólgandi pizzu og rafmagnshjólastól
Já, aumingja jólasveinninn Hann fór alblóðugur heim Sjúkrabíllinn sótt´ann Á blóðið í skegginu skein Hann var ekki með neina meðvitund Það sem eftir var af jólunum Öll börnin sátu heima leið Og biðu eftir pökkunum
Já, já, já Fyrirgefðu að ég rotaði þig um jólin Ég vona þú sért sáttur við rafmagnshjólastólinn Já fyrirgefðu að ég rotaðu þig um jólin Ég ætla ekki neitt að rota þig um þessi jól Ég ætla ekki neitt að rota þig um þessi jól Já eitt af skárri jólalögum landans myndi ég segja.
En nú á ég bara eitt próf eftir og svo frí, sem er gott að sjálfsögðu. En hvað ég ætla mér að gera jólafríinu er hulinn ráðgáta. Ég gæti náttúrulega...lært smávegis, undirbúið mig fyrir næstu önn...neeii ekki sjéns. Ég ætla að hafa það gott um jólinn, hanga með fjölskyldu og vinum, opna pakka og éta eins og svín, það eru jól að mínu mati.
Ég tel jólin og páskana samt ekki vera neitt það heilög, eða ég er ekki alveg viss, því sumir nota jól og páska bara sem afsökun fyrir því að éta og éta og éta og úða í sig nammi, en auðvitað eru aðrir sem virða hinn sanna jólaanda. Það að eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum og minnast fæðingu frelsarans, það er hinn sanni jólaandi. Maturinn, gjafirnar og nammið á ekki að skipta máli. Mikið rosalega er ég samt þakklátur fyrir að hinn sanni jólandi skuli ekki ríkja á mínu heimili. Ég væri ekki til í jól án matar, gjafa eða nammi. Bara nei takk..
Uppskrift að frábærum jólum: 1 msk Fjölskylda 3-4 vinir Fullt af góðum mat 4-5 gjafir
og dassa þetta svo með piparkökum og kannski einu jólalag(má sleppa) En eins og hinn þjóðþekkti Skrámur segir " Jóla hvað " 'Sveitavargurinn ';*
»
20.11.2007 23:22:43 / sveitavargurinn
Langar enn og aftur að tala einhvað um útlendinga og margt sem tengist þeim, alltaf gaman að tala um þá. Það er líka svo margt að tala um, þeir eru líka eitt af þeim málum sem alltaf er verið að tala um. Sumir vilja fá þá hingað, sumir fá ekki nóg af öðruvísi menningu og siðum, sem er gott. En aðrir vilja ekkert með þetta "hyski", eins og margir kalla þá, hafa. Persónulega finnst mér að við ættum að bjóða þá velkomna og sýna þeim skilning. Eitt af ríkjandi löndum í heimi er samansett af útlendingum, það er byggt upp af útlendingum. Þá er ég að sjálfsögðu að tala um Bandaríkin. Vissulega eru það nokkrir sem slást og smygla, en fólk sem segir að allir séu í slagsmálum og einhverju dóp rugli eru bara að alhæfa. T.d. ef að Íslendingur drepur mann, eru þá allir Íslendingar morðingjar ? Sumir vilja hindra flutning þeirra hingað til lands. Hverjir eiga þá að vinna öll skítverkin fyrir okkur sem enginn íslendingur nennir að gera ? Við þörfnumst þeirra, t.d. við stíflugerðir, fiskvinnslu og fleira, því að fæstir Íslendingar láta bjóða sér að vinna í frystihúsi, sérstaklega ef þeir eru eitthvað menntaðir. Þeir eru ekki að gera neitt annað en gott margir hverjir þeirra. Sumir segja líka að “menntað fólk eigi að sjálfsögðu ekki að vinna í frysti húsi, eða við önnur verkamannastörf, það er alger fásinna, við þörfnumst þeirra ekki, við gátum séð um okkur sjálfir áður en þeir fóru að streyma hingað og við getum það enn”. Pælið í ruglinu sem sumt fólk lætur útúr sér. Íslendingar gátu unnið hvaða störf sem er hér áður fyrr, og hér áður fyrr þýddi heldur ekkert væl, þú varðst bara að gera það sem þér var sagt. Það þótti líka bara sjálfsagður hlutur að fara í frystihús eða á sjóinn hér áður fyrr. En nú eru Íslendingar orðnir svo snobbaðir og pjattaðir margir hverjir, að þeir þora ekki að snerta fiskinn. Fólk talar um að menntað fólk eigi ekki að láta bjóða sér vinnu í fisk eða við önnur verkamannastörf. Við erum að flytja inn menntaða útlendinga, sumir þeirra eru lögfræðingar, læknar, sálfræðingar, verktakar og fleira, og við látum þá vinna í fiski og öðrum verkamannastörfum. Svo er líka gott að fá útlendinga í “undanhald” eins og sagt er, þá er ég að meina að Íslendingar þurfa að fara að blanda sér, við erum flestir skyldir í fimmta ættlið. Ekki viljum verða það úrkynjuð að við endum uppi sem rangeygðir mongólítar og önnur lönd fari að selja miða í skemmtiferðir hingað til lands undir nafninu “freaky Island”. Margir íslendingar vilja halda hinum “hreina” íslenska kynstofn, þeir vilja nefnilega ekki eiga svört, gul, brún eða skáeyg börn, eða þaðan af vera svört og skáeygð. Svart, gult, brúnt, bleikt, hvítt hver er munurinn ? Hann er nefnilega enginn, það skiptir engu máli hvaða litur er á fólki, það er innrætið sem gildir. Þegar þú kaupir þér bíl þá velur þú hann ekki eftir litnum heldur gæðunum, sem er innræti bílsins. Því óháð stærð, lit, breidd, augnastærð, hárlit, tungumáli eða öðrum útlits eiginleikum, þá erum við öll mjög lík. Verði þeim bannað að koma hingað til lands fer allt í klessu, álverin “dýrmætu” verða aldrei byggð, virkjanirnar verða aldrei byggðar, Íslendingar eiga eftir að þurfa að óhreinka á sér hendurnar með því að fara að vinna í fiski eða við önnur verkamannastörf, og svo margt fleira.
Birt með fullri virðingi til allra íslendinga. Þið takið þetta bara til ykkar sem eiga það.
'Sveitavargurinn ':* Sem styður útlendinga
»
12.11.2007 10:55:16 / sveitavargurinn
Mér finnst tíminn líða of hratt. Nú er síðan orðin tveggja ára gömul, en mér finnst það svo stutt síðan seinast. Mér finnst líka svo stutt síðan ég var að byrja í 10 bekk, stutt síðan ég flutti á Stöðvarfjörð en svona er þetta bara. Skólinn er líka fljótur að líða, kannski of fljótur. Stundum hefur maður of lítinn tíma til að læra sérstaklega þegar kennararnir ákveða að skella bara gomms af heimavinnu á mann eina vikuna. Ekki sérlega gaman. En maður reynir að læra eins og maður getur auðvitað. Það rifjaðist upp fyrir mér um daginn þegar við gerðum stuttmyndina okkar í 10 bekk, ég, Einar, Guggi, Karol og Snorri eða G-Beks, eins og við kölluðum okkur. Ég ætla að setja það hér inn ykkur til yndisauka og ánægju. Þið verðið að fyrirgefa en að eru 2-3 þrír klippigallar í henni, en hún er ekkert verri fyrir það. Þið verðið bara að horfa á það allt. Alveg til enda, þegar mistökin koma. Ef þið sjáið þetta ekki þá er linkurinn hér
»
12.11.2007 10:54:46 / sveitavargurinn
Mér finnst tíminn líða of hratt. Nú er síðan orðin tveggja ára gömul, en mér finnst það svo stutt síðan seinast. Mér finnst líka svo stutt síðan ég var að byrja í 10 bekk, stutt síðan ég flutti á Stöðvarfjörð en svona er þetta bara. Skólinn er líka fljótur að líða, kannski of fljótur. Stundum hefur maður of lítinn tíma til að læra sérstaklega þegar kennararnir ákveða að skella bara gomms af heimavinnu á mann eina vikuna. Ekki sérlega gaman. En maður reynir að læra eins og maður getur auðvitað. Það rifjaðist upp fyrir mér um daginn þegar við gerðum stuttmyndina okkar í 10 bekk, ég, Einar, Guggi, Karol og Snorri eða G-Beks, eins og við kölluðum okkur. Ég ætla að setja það hér inn ykkur til yndisauka og ánægju. Þið verðið að fyrirgefa en að eru 2-3 þrír klippigallar í henni, en hún er ekkert verri fyrir það. Þið verðið bara að horfa á það allt. Alveg til enda, þegar mistökin koma.
»
25.10.2007 21:58:04 / sveitavargurinn
Lífið á
að vera þannig að allir geti lifað því. En sumir hafa sér
kröfur og þurfa meira en aðrir og hafa allt miklu þægilegra.
Þeir sem eiga mikið af peningum eiga mikið að óþarfa hlutum,
en sumir þurfa alls enga peninga til að komast lífið af. Að
vísu er þeirra líf ekki eins frjálst og þeirra sem eiga mikið
af peningum. Þeir fátæku geta að eins keypt nauðsynlega hluti
eins og föt og mat.
Ég hef mínar sér kröfur, eins og aðrir, um
hvernig lífi er best að lifa. Því meiri peningar því meiri
þægindi, en það er ekki þó að segja að peningar veiti ánægju
og hamingjusemi því það er ekki eitthvað sem fæst með
peningum, svo peningar eru ekki allt. Ef við eigum nóg af
peningum lifðum við leti lífi og þyrftum þá ekki einu sinni
að hugsa sjálf. Ef ég ætti mikið af peningum myndi ég
allavega ekki hreifa mig allan daginn því þá myndi ég nota
peningana til að gera allt fyrir mig. Segjum svo að ég sé
ríkasti maður í heimi, ef ég ætti bíl þyrfti ég ekki einu
sinni að keyra hann sjálfur því ég ætti þá líka
bílstjóra.
Svona líf kjósa sumir að eiga
en ég er ekki á sama máli því ef menn lifa svona lífi, verða þeir
bara aumingja og gera ekkert merkilekt í lífinu því þeir þurfa þess
ekki eða eru búnir að því, svo það er sem sagt ekkert merkilegt í
lífi þessara ríku manna.
Ég vil lifa í spennu og í
tilþrifum, keyra kappakstursbíl á kappakstursbraut og hitta holu í
höggi, og það gerist ekki ef ég læt alltaf einhvern annan gera það
fyrir mig því þá fæ ég ekkert út úr því. Aðal málið er að gera það
sem manni finnst skemmtilegt og þá ekki oft því þá hættir það að
vera skemmtilegt.
Það er ágætt að finnast spenna skemmtileg en
sumir fá ekkert tækifæra á að lifa spennu í gegnum íþróttir svo
þeir reyn að fá hana einhver staða annarstaðar, ég tek sem dæmi,
ræna, þeir ræna til að fá spennu. Þessir menn eru ekkert anna en
spennufíklar. Sem betur fer fá flest allir tækifæri á að upplifa
spennu í gegnum íþróttir. Sumir sem ræna fá ekkert út úr því og eru
engir spennufíklar en þá eru þeir ekki að ræna vegna spennunnar
heldur til að geta lifað af.
Sem betur fer eiga allir einhvern möguleika á
góðu lífi því peningar og spenna er ekki allt það þarf líka ást og
það er eitthvað sem allir eiga jafnan möguleika á en ástin getur
verið grimm og valdið mörgum mikilli sorg. Flestir eiga einhvern að
og fylgir oft mikil ást í því. Ást er því eina góða við lífið sem
allir upplifa, en stundum getur hún verið óréttlát og
grimm.
Hraða, spennu, tilþrif og ást er allt sem ég þarf í mitt líf og sem
betur fer þarf ég ekki að brjóta lög til að upplifa þessi atvik. Ég
vona að allir eiga eitthvað til að lifa fyrir því það eru allir með
sín áhugamál og eiga eiginn skoðanir á því hvernig lífi er best að
lifa. En heimurinn er stór og það eiga ekki allir jafn gott og við,
við sem getum upplifað áhugamál okkar , því sumir fá ekkert
tækifæri til að spreyta sig á áhuga málum sínum.
P.S.
(26.10.07')
Ætla svo ekki allir á DJ Pál Óskar í kvöld ??
'Sveitavargurinn ';*
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
Heimsóknir
Í dag: 2 Alls: 58680
|